Thursday, July 29, 2010     •  Login
 
   
 
 
 
 Iðngreinar     
  

 Lausnir     
  

 
3X Technology
Saga 3X Technology

3X Technology var stofnað árið 1994 á Ísafirði, undir nafninu 3X Stál. Í upphafi  byggðist fyrirtækið á hönnun og framleiðslu á búnaði úr ryðfríu stáli og þjónustu við sjávarútvegsfyrirtækin, einkum rækjuverksmiðjurnar, á Ísafirði og nágrenni. Farið var að huga að markaðssókn erlendis þegar árið 1997 og hófst útflutningur til Kanada síðla á því ári. Árið 1999 opnaði 3X söluskrifstofu í Kanada vegna mikilla verkefna í uppbyggingu rækjuiðnaðar þar.

Frá árinu 2002 tengdust megin verkefni fyrirtækisins  innleiðingu á heildarlausnum í móttöku og karameðhöndlun fyrir rækju og bolfisk.
Árið 2006 kynnti 3X nýja gerð uppþíðingarkerfa fyrir fiskblokkir, sem eru nú í notkun víða í Evrópu. Sama ár kynnti 3X heildarlausn í vinnslu á fiskmarningi, sem skilar mun hærra afurðaverði en hefðbundar aðferðir.

Árið 2006 hlaut 3X Útflutningsverðlaun forseta Íslands fyrir ágætan árangur sem fyrirtækið hafði náð á skömmum tíma í sölu og markaðsetningu á sérhönnuðum tækjum og tækjalausnum fyrir matvælaiðnaðinn.


Árið 2007 var nafni fyrirtækisins breytt í 3X Technology, með aukinni áheyrslu á erlenda markaði, einkum  Evrópu.

3X Technology býður upp á úrval af lausnum fyrir matvælaiðnað, bæði stöðluðum og sérhæfðum. Hjá 3X vinnur hópur tæknimanna, hönnuða og ráðgjafa með mikla reynslu við að innleiða og sérsníða lausnir fyrir matvælavinnslu.

 

Syndicate   Print   

 
 
   
  3X Technology | Sindragata 5 | 400 Ísafjörður | Sími 450 5000