Rækjuvinnsla
3X Technology hefur frá upphafi verið leiðandi í vinnslu á kaldsjávarrækju. Bðið er upp á heildarlausnir með hönnun og ráðgjöf, verkefnastjórnun og vinnslubúnaði.

Móttaka
Hráefnisnýting er eitt af lykilatriðum í rækjuvinnslu og mikilvægt að meðhöndla vöruna rétt strax í móttöku.
3X Technology býður lausnir í lageringu og innmötun, sjá nánar í Karakerfi.
Suða og pillun
3X hefur sinnt ráðgjöf og boðið lausnir við flutning á afurðum úr “low-risk” svæði yfir í “high-risk” svæði.
Hreinsun
Við hreinsun á rækju eru notaðar háþróuðustu aðferðir, sem þekkjast innan matvælageirans, með fullkomnum tækjabúnaði og flóknu flæði afurða. Hjá 3X Technology er mikil reynsla við hönnun á slíkum vinnsluferlum og við smíði á flutningskerfum og skelhreinsibúnaði.
Íshúðun
Sprautuíshúðun frá 3X er sérhönnuð fyrir afurðir eins og heilfrysta rækju, m.t.t. nákvæmnis og jafnrar íshúðunar, sjá IQF Lausnir.
Pökkun
Skömmtunarvogir frá 3X Technology eru meðal þeirra bestu á markaðinm. Þær eru til í tveimur útfærslum eftir skammtastærð og afköstum, sjá nánar í Vigtun