3X býður upp á úrval af flutningskerfum fyrir matvælavinnslu. Færibönd frá 3X eru endingargóð og þrifavæn og eru sett saman úr stöðluðum einingum.
Spíraldæla
3X spíraldæla er notuð til að flytja viðkvæma vöru í lokaðri rás við lágan þrysting. Hentar vel fyrir smáan fisk, rækju og hrogn.

Spíralkælitankar
Spíralkælitankar eru ný aðferð við að kæla heilan fisk eða flök. Koma í stað hefðbundinna kælitanka og tryggja betur jafna kælingu afurða. Stærðir tankanna er hægt að sérsníða eftir hráefni og afköstum.

Ísskilja
3X ísskiljur eru notaðar í innmötunarkerfum í bolfiskvinnslu með góðum árangri. Þær eru til í mismunandi stærðum eftir afköstum.
