Thursday, July 29, 2010     •  Login
 
   
 
 
 
 Iðngreinar     
  

 Lausnir     
  

 
Karakerfi

Karakerfi frá 3X eru í fremstu röð slíkra kerfa á markaðnum.  Heildarlausn fyrir innmötun á körum, karahvolfun, afstöflun/stöflun og karaþvottur.  Karalausninar samanstanda af stöðluðum einingum, sem hægt er að laga að mismunandi rými.

Góð meðhöndlun hráefnis er höfð að leiðarljósi við hönnun karakerfisins. Körin eru losuð í skömmtum og tryggt er að hráefni safnist ekki upp á vinnslulínu.

 

 

Með sjálfvirkri afstöflun á körum er hægt að raða stöfluðum körum inn á innmötunarband og fækka ferðum lyftara niður í þriðjung  Sjálfvirk tenging við karaþvottavél og karastöflun fækkar ferðum lyftara enn frekar. Með notkun kerfisins er tryggt jafnt flæði hráefnis inn á vinnslulínu og reynslan hefur sýnt að við það hafa afköst aukist um 10-12%.  Bætt meðhöndlun á körum eykur einnig endingartíma þeirra.

Hægt er að tengja karaþvottavél beint við kerfið, eða að hafa þvottvél sjálfstæða.

 Eiginleikar

  • Jafnari innmötun
  • Betri meðhöndlun á hráefni
  • Minni lyftaranotkun
  • Bætt meðhöndlun eykur líftíma á körum

 

 
 Print   

 
 
   
  3X Technology | Sindragata 5 | 400 Ísafjörður | Sími 450 5000