Uppþíðingarlausnir frá 3X byggja á skrúfutanki, með stillanlegum hraða og vatnshita.
Auðvelt er að breyta stillingum kerfisins fyrir mismunandi blokkarstærðir, sem eru í flestum tilfellum frá 7 kg til 28 kg. Með því að stýra hraða skrúfunar, er uppþíðingartimanum stjórnað, en hann er um ein til þrjár klst, eftir afurðum.
Auðvelt að stjórna kjarnahita uppþíddu afurðarinnar, sem er oftast frá -2°C to +2°C.

Með kerfinu fylgir rafdrifið færiband fyrir bretti með frosnum blokkum og brettalyfta, sem er staðsett við innmötunarenda karsins. Starfsmaður getur því auðveldlega stillt blokkirnar í vinnuhæð, þegar hlaðið er af brettinu í tankinn.
Í flestum tilfellum þarf aðeins einn starfsmann við að raða inn í karið.