23.02'12 webMAN Innskráning
   
 
 
 
 
Fyrirtækið

3X Technology

3X Technology var stofnað árið 1994 á Ísafirði, undir nafninu 3X Stál. Í upphafi  byggði starfssemi fyrirtækisins á hönnun og framleiðslu á búnaði úr ryðfríu stáli og þjónustu við sjávarútvegsfyrirtækin, einkum rækjuverksmiðjurnar, á Ísafirði og nágrenni. Farið var að huga að markaðssókn erlendis þegar árið 1997 og hófst útflutningur til Kanada síðla á því ári. Árið 1999 opnaði 3X söluskrifstofu í Kanada vegna mikilla verkefna í uppbyggingu rækjuiðnaðar þar.

Frá árinu 2002 tengdust megin verkefni fyrirtækisins  innleiðingu á heildarlausnum í móttöku og karameðhöndlun fyrir rækju og bolfisk.Árið 2006 kynnti 3X nýja gerð uppþíðingarkerfa fyrir fiskblokkir, sem eru nú í notkun víða í Evrópu. Sama ár kynnti 3X heildarlausn í vinnslu á fiskmarningi, sem skilar mun hærra afurðaverði en hefðbundar aðferðir.

Árið 2006 hlaut 3X Útflutningsverðlaun forseta Íslands fyrir ágætan árangur sem fyrirtækið hafði náð á skömmum tíma í sölu og markaðsetningu á sérhönnuðum tækjum og tækjalausnum fyrir matvælaiðnaðinn.

Árið 2007 var nafni fyrirtækisins breytt í 3X Technology, með aukinni áheyrslu á erlenda markaði, einkum  Evrópu.

3X Technology býður upp á úrval af lausnum fyrir matvælaiðnað, bæði stöðluðum og sérhæfðum. Hjá 3X vinnur hópur tæknimanna, hönnuða og ráðgjafa með mikla reynslu við að innleiða og sérsníða lausnir fyrir matvælavinnslu.

 
   
  3X Technology | Sindragata 5 | 400 Ísafjörður | Sími 450 5000