Karakerfi frá 3X eru í fremstu röð slíkra kerfa á markaðnum.
Heildarlausn fyrir innmötun á körum, karahvolfun, afstöflun/stöflun og karaþvottur. Karalausninar samanstanda af stöðluðum einingum, sem hægt er að laga að mismunandi rými.
Góð meðhöndlun hráefnis er höfð að leiðarljósi við hönnun karakerfisins. Körin eru losuð í skömmtum og tryggt er að hráefni safnist ekki upp á vinnslulínu. Með notkun kerfisins er tryggt jafnt flæði hráefnis inn á vinnslulínu og reynslan hefur sýnt að við það hafa afköst aukist um 10-12%.
Mikilvægi þess að jafna innmötun á vinnslulínur sést vel í á mynd hér að neðan. Gögn eru fengin úr raunmælingum í íslensku fiskvinnsluhúsi.

Með sjálfvirkri afstöflun á körum er hægt að raða stöfluðum körum inn á innmötunarband og fækka ferðum lyftara niður í þriðjung Sjálfvirk tenging við karaþvottavél og karastöflun fækkar ferðum lyftara enn frekar. Bætt meðhöndlun á körum eykur einnig endingartíma þeirra.
Hægt er að tengja karaþvottavél beint við kerfið, eða að hafa þvottvél sjálfstæða.
Eiginleikar
- Jafnari innmötun
- Betri meðhöndlun á hráefni
- Minni lyftaranotkun
- Bætt meðhöndlun eykur líftíma á körum

Einfalt innmötunarkerfi

Einfalt innmötunarkerfi með ísskilju og hráefnisstýringu

Innmötunarkerfi með ísskilju, hráefnisstýringu og karalager, losun tómra kara til hliðar

Innmötunarkerfi með ísskilju, hráefnisstýringu og karalager, losun tómra kara til hliðar beint í karaþvottavél, sjálfvirk stöflun kara eftir þvott