21.05'12 webMAN Innskráning
   
 
 
 
 
Vinnslulínur

3X Technology býður vítt svið vinnslulína fyrir bolfiskvinnslur.

Vinnslulínur samanstanda af snyrtilínum fyrir flök, handflökunarlínum, snyrtilínu fyrir flattan fisk og slægingarlínum.


 

hradsnyrtilina

 

 

Hraðsnyrtilínur fyrir heil flök

Eitt flak í einu matað á hvert stæði á línunni, starfsmaður á línu lætur frá sér eitt flak í einu. Talning er á hvert stæði inn og út.

 

 

 


Snyrtilína

 

 

Snyrtilínur fyrir flök

Bjóða uppá meiri möguleika við vinnslu, vigtað er inná hvert vinnustæði og einnig er vigtað frá hverju vinnustæði. Mögulegt er að hafa margar útgönguleiðir fyrir flök og bita frá hverju vinnustæði á línunni.

 

 

 


Handflökunarlína með einstaklingseftirliti

 

 

 

Handflökunarlínur með og án einstaklingseftirlits

Handflökunarlínur með einstaklingseftirliti gera fiskframleiðendum þann möguleika að greiða laun tengd við afköst og nýtingu hvers starfsmanns.

 

 


Snyrtilína fyrir flattan fisk

 

 

Snyrtilínur fyrir flattan fisk

Flattur fiskur tekinn beint frá flatningsvél og dreift á vinnustæði á línunni. undir línunni er þvottaker.

 

 

 


Slægingarlína

 

 

 

Slægingarlínur

Slægingarlínurnar gera afar auðvelt að flokka hrogn, lifur og svil frá og skila öllum afurðum á þar til gerða staði við línuna.

 

 

 


 
   
  3X Technology | Sindragata 5 | 400 Ísafjörður | Sími 450 5000