Ferskleiki hráefnis byggir á réttri meðferð um borð í fiskiskipum, ef ekki er rétt staðið að vinnslunni er lítið hægt að gera eftir að fiskurinn er kominn í lestar skipsins. Helstu galla má rekja til ónógrar blæðingar, of- eða van kælingar og lítilla þrifa eftir slægingu.
3X Technology hefur þróað og aðlagað snigiltæknina að þörfum íslenskra krafna um hámarksgæði hráefnis með framleiðslu á blóðgunar- og kælingar- tanki. Tankurinn tryggir að allt hráefni fái jafnan tíma til blæðingar eða kælingar. Með „snigilaðferðinni“ er tryggt að hráefnið sem fer fyrst inn, kemur fyrst út, ekki er lengur hætta á að hráefni „troðist undir“ á álagstímum því að skrúfan tryggir jafnan tíma á allt hráefni án undantekninga. Með tankinum fylgir hraðastýring þar sem notandinn getur fastsett þann tíma sem passar viðkomandi vinnslu.
Snigiltankar gera sjómönnum mögulegt að bera að landi fyrsta flokks hráefni sem allt hefur fengið bestu mögulega meðhöndlun og sem er einsleitt að gæðum.

Blæðingar og kælitankar fyrir fiskiskip
Tankarnir eru fáanlegir í mörgum stærðum, allt eftir þörfum hvers framleiðanda.